Allir þeir er fyrir ætternis sakir bera nafnið Richter á Íslandi, svo og fjöldi annarra, eru
komnir af Samúel Jakobssyni Richter beyki, fæddum í Slangerup í Danmörku árið 1770 og kom til Íslands skömmu fyrir aldamótin 1800..
1. Jacob Candemus Richter (1799-1851). Hann er ættfaðir Richtersættarinnar sem kennd er við Ísafjörð og annarra sem ekki bera Richtersnafn.
2. Matthías Richter (1801-1863). Frá honum er komin ætt í Strandasýslu sem ekki ber Richtersnafnið.
3. Magnús Richter (1803 – um 1855). Eini afkomandi hans lést barn að aldri.
4. Jón S. Richter, fæddur 1806. Ekki er vitað um örlög hans.
Með seinni konu sinni Guðrúnu Jónsdóttur (1816-1914) átti Samúel einn son.
Samúel Richter (1835 – 1910). Frá honum er komin Richtersættin sem kennd er við Stykkishólm.
Myndin hér til vinstri er af Guðrúnu Jónsdóttur
Richter seinni konu Samúels Richter eldri. Þessi mynd er
ein elsta varðveitta mynd af Íslendingi sem tekin er af Íslendingi.
Hún var tekin á árunum 1860-65 af Guðbrandi Guðbrandssyni
kaupmanni á Grundarfirði. Myndin er varðveitt á
Þjóðminjasafninu.
Smellið á myndina til að sjá hana stærri.